Helvítis pósturinn hringdi bjöllunni hérna rétt fyrir átta í morgun.
Sem betur fer fyrir blessaðan manninn var hann með pakka sem ég var búinn að vera að bíða eftir.
Í þeim pakka var þetta:

Geggjuð græja, alveg geggjuð.
Svo það næsta ( já, ég skal alveg selja eitthvað af hinum símunum líka…:

Já og svona meðan ég man. TIL HAMINGJU MEÐ GOSLOKANN
Vildi að ég gæti verið með ykkur þarna í Eyjum.
Ég fór af einhverjum ástæðum að rifja upp hvað maður er búinn að kaupa sér af dóti hérna úti. Kom í ljós að það er helvítis hellingur.
Hefst nú lesturinn.

HTC Touch, keyptur í þessum mánuði.

Canon EOS 350D myndavél, með batterígripi, keypt í október.

ARGON 7240 hátalarar, keyptir í maí.

ARGON magnari, keyptur í maí.

JBL Creatures II hátalarar, keyptir í desember.

20″ iMac, keyptur í nóvember.

iPhone, keyptur í apríl.

Asus EEE PC, keypt í apríl.
Og svo það sem ég er að reyna að kaupa í augnablikinu:

Nokia 8800 Sirocco.
Spurning hvort þetta sé orðið ágætt í bili.