Eldri færslur fyrir June, 2007

Það styttist í þetta!

28. June, 2007 eftir Halldór

Það er alltaf að styttast í að ég flýji land. En núna eru akkúrat 

Hvað er með veðrið ?

18. June, 2007 eftir Halldór

Alveg er þetta dæmigert fyrir íslenskt veður. Þegar maður á sumarfrí, svona eins og ég tók mér á föstudaginn, þá er hífandi rok og skítakuldi. Svo þegar fríið er búið, eins og í dag, þá kemur glampandi sól og bongóblíða.Ég skora á alla að fara í mál við veðurstofuna og krefjast lagfæringa og bóta og hananú! 

Tiskotansi

15. June, 2007 eftir Halldór

Þetta video er svo æðislegt…

Minn í sumarfríi…

15. June, 2007 eftir Halldór

Jæja, ákvað að taka pínu sumarfrí og hafa langa helgi. Reyndar verður eitthvað lítið úr því að þetta verði frí þar sem það er von á rafvirkja korteri eftir að þetta er skrifað (09:45) og það er borað í öllum hornum í þessu húsi og húsinu sem verið er að byggja hérna fyrir utan. Það sem verra er, þetta er svona um helgar líka…. Get ekki beðið eftir að flytja út í september. Annars er Árni útlendingur væntanlegur upp á land þannig að morgdundeginum verður að hluta til væntanlega eytt í þynnku.

Edit: Smá misskilningur á ferðinni hérna. Árninn er ekkert á leiðinni upp á land. Hins vegar er systir hans á leiðinni á djammið. Það hlýtur að koma á sama stað niður.

Hvar er tengill.is ?

12. June, 2007 eftir Halldr

“Hvar er tengill.is ?” Gætuð þið verið að spyrja ykkur (þó ég efist um það). Ég ákvað að leggja síðuna niður í þeirri mynd sem hún var og taka allt annan pól í hæðina. Að byrja að blogga (einu sinni enn). Þannig að á næstu dögum, vikum, mánuðum og jafnvel árum þá getið þið lesið um það sem á daga mína drífur á þessari síðu. Aldrei að vita nema ég skelli inn nokkrum myndum líka ef maður rekst á eitthvað myndefni.  Ég á reyndar eftir að leggjast í smá þýðingarvinnu með síðuna þannig að hún gæti breyst á næstu dögum en það verður ekkert stórvægilegt.