Eldri færslur fyrir July, 2007

Þjóðhátíð er hafin!

31. July, 2007 eftir Halldór

Þjóðhátíð er hafin

Þó að þjóðhátið hafi ekki verið formlega sett ennþá þá erum við byrjuð. Fórum s.s. aðeins í Vínbúðina í dag.

Hálfvitinn

31. July, 2007 eftir Halldór

Ég veit ég er búinn að sýna ykkur þessa áður en þar sem Þjóðhátíðinni er nýlokið þá finnst mér við hæfi að henda henni inn aftur. Þetta er hinn eini sanni hálfviti.

James May’s 20th century

22. July, 2007 eftir Halldór

Hann James May er sennilega hvað þekktastur fyrir að stjórna Top Gear þáttunum með Jeremy Clarkson og Richard “Hamster” Hammond. Hann er nú kominn með þætti sem hann stjórnar einn og heita þeir James May’s 20th century. Kynningarmyndband fyrir þættina má sjá hérna að neðan.

Myndirnar komnar

11. July, 2007 eftir Halldór

Ég kom mér loksins í það að ritskoða myndirnar frá Vestmannaeyjum ( trúið mér, það var alveg þörf á því ) og þær eru komnar upp. Kíkið á þér hér

Fréttir af andláti mínu eru stórlega ýktar!

2. July, 2007 eftir Halldór

Já já, ég er ekki dauður enn, bara búinn að vera frekar latur. Fyrir utan það að hafa nóg að gera í vinnunni. Annars féll þessi kenning mín um veðrið um sjálfa sig. Komst að því í fjögurra daga helginni minni núna síðast. Framundan er svo enn ein stutt vinnuvikan. Verður að vísu fjórir dagar núna. Ástæðan er sú að kallinn ætlar að skella sér til Vestmannaeyja að heimsækja Árna útlending yfir Goslokahátíðina. Myndavélin verður með í för og eflaust mikið notuð. Stay tuned.