Af því að ég er nískur andskoti þá vil ég endilega fá skype addressurnar hjá ykkur svo ég geti talað við ykkur frítt. Dýrt að hringja svona á milli landa. Annað hvort skella þeim hérna í kommentin eða nota “hafðu samband” hlekkinn hérna að ofan.
…að netið hérna komst í gang. Búnir að bíða eftir því síðan áður en ég kom út. Annars er eiginlega ekkert að frétta. Búið að vera þetta fína veður, 15-16°C og sól yfirleitt :grin: .Núna næstu daga tekur svo bara við atvinnuleit með tilheyrandi skemmtilegheitum.Læt heyra betur í mér þegar ég veit meira um það.
Já, þið lásuð rétt. Ég er hættur í vinnunni. Ætla að nota þessa helgi og eitthvað fram í næstu viku til að ganga frá einhverri pappírsvinnu og tilkynna mig úr landinu.
Annars er það rosalega fyndið hvað maður er fastur í einhverri rútínu. Ég vissi engan veginn hvað ég ætti af mér að gera í dag þegar ég fór á fætur (sem var um níu, allt of snemma). Þurfti reyndar að fara niður í Formprent og ná í launin mín og kveðja liðið.
Þannig að núna sit ég bara á Thorvaldsen Bar og sötra latte og nördast í tölvunni. Ætli maður neyðist þá ekki til að fá sér smá bjór í kvöld, fyrst maður er í kaupstaðarferð hvort eð er.
Jæja, kannski ekki í skip en það er komið niður á höfn alla vegana. Og mikið déskoti er leiðinlegt að standa í svona flutningum. Alveg ekki að nenna því. En annars eru bara 10 dagar í flutninginn mikla. Gæti verið þess vegna sem ansi margir eru búnir að hafa samband við mig undanfarið og heimtað hitting og/eða fyllerí. Maður getur nú ekki sagt nei við því er það ?
Annars tókst Jóni að flytja inn í fyrradag. Þó það hafi nú eiginlega verið í gær. Hann var víst að til að verða 4 um morguninn. Nágrönnum okkar til mikillar gleði væntanlega.
Þegar út er komið tekur svo við stíft ferli maður. Fyrst og fremst verður það nú að finna sér einhverja vinnu en síðan, númer 2-11, eru ferðir (já, ferðir í fleirtölu) í IKEA. IKEA er einmitt búðin sem er með allt sem piparsveinninn þarfnast, eða svona þar um bil.
Mig vantar alla vegana skrifborð, vinnustól og einhverjar hillur. Svo vantar svona hitt og þetta í íbúðina. Borðstofuborð, sjónvarpsskáp, eldhúsborð og svo mætti eiginlega lengi telja. Skilst reyndar að Jón hafi græjað borðbúnað um daginn. Þannig að við þurfum ekki að lifa eins og algerir barbarar.