Vinna komin og ég er ennþá á lífi
Já, maður fékk sér bara vinnu.
Ég er að vinna á þessum ágæta veitingastað sem heitir Zeleste og er staðsettur rétt við Nýhöfn, á besta stað í bænum.
Ekki stór matseðill en frekar fjölbreyttur samt; fiskréttir, kjötréttir, pasta og ýmislegt góðgæti. Svo fær brunchinn líka rosalega góða dóma.
Verst að ég hef ekki haft tíma til að prufa hann. Græja það við tækifæri.
Ég hef heldur ekki haft tíma til að sinna nýjasta áhugamálinu sem er ljósmyndun. Er nú samt að fara í næstu viku að kaupa mér nýja linsu, flass og þrífót. Verst hvað þetta er helvíti dýrt hobbí. Kíkja svo á flickrið mitt.
En góðar fréttir. Í byrjun des. kemur til okkar pakki. Sá pakki inniheldur íslenskt lambalæri, íslenskan fisk og íslenskan humar. Hrikalega verður gott að fá íslenskt lamb. Ég er nú ekki búinn að vera lengi hérna úti en ég er strax farinn að sakna þess.
Jæja, ég er farinn að sofa. Ætlaði bara að láta vita að maður sé ennþá á lífi