Jæja, þið segið það
7. February, 2008 eftir Halldór
Mikið rosalega hef ég verið latur að skrifa hérna upp á síkastið. Reynum að bæta úr því núna. Ég er búinn að vera að drukna í vinnu undanfarið og er það bara hið besta mál, það gefur jú meira í budduna. Ég var að leggja lokahönd á plön fyrir sumarfrí líka og þið eruð nokkur sem verðið svo heppin að fá að sjá mig á Íslandi í nokkra daga.5. – 15. maí ætla ég að skreppa til Kosovo að leika mér aðeins. Skrepp yfir til Grikklands í nokkra daga í leiðinni.Svo ætla ég að skreppa til Íslands 29. júlí og vera til 6. ágúst. Þið megið giska þrisvar hvar ég verð og hvað ég verð að gera þessa daga. :lol: Segiði mér svo eitthvað sniðugt, ok ?