Páskar alveg að detta inn og svona….
16. March, 2008 eftir Halldór
Jæja krakkar, við skulum sjá hvort ég get haldið mig við það að blogga svona ca. einu sinni í mánuði. Hefur gengið eitthvað hálf brösulega undanfarið.
Smá breyting á sumarfríi svona til að byrja með. Kosovo ferðin verður að öllum líkindum 2-9 maí og Íslandsferðin verður ákveðin síðar.
Annars eru allar líkur á því að ég bregði mér til Íslands eftir ca. hálfan mánuð. Það verður þó engin skemmtiferð þar sem mér skilst að hún amma mín blessunin sé við það að geyspa golunni. Ég kæmi þá til með að taka 2-3 daga á klakanum sennilega og kannski hitta á eitthvert ykkar í smá stund. Ég læt betur vita þegar ég veit hvenær ég kem og allt svoleiðis.
Over and out.