Eldri færslur fyrir April, 2008

Brjáluð blíða

28. April, 2008 eftir Halldór

veðrið núna

Svona ef ske kynni að ykkur langaði að vita þá er bongó blíða hérna í danaveldi.

Stefnir allt í gott sumar, íha.

Smá niðritími

27. April, 2008 eftir Halldór

Jæja, þá er maður aftur online. Sumir gleymdu að borga af léninu og ISNIC  var ekkert rífandi hresst með það.

Annars er svo sem ekkert að frétta. Ennþá að bíða eftir svari frá DFDS varðandi vinnuna þanig að ég dunda mer bara á hótelinu þangað til. Hvað ætlið þið annars að gera í sumar ?

Íslandsferð

3. April, 2008 eftir Halldór

 

Ég er að skreppa til Íslands á mánudaginn og verð fram á laugardag. Endilega takið frá smá tíma svo maður geti hitt á eitthvert ykkar.

Látiði mig vita hvenær þið eruð laus svo ég geti planað mig aðeins, ok.

RIAA fær skell

2. April, 2008 eftir Halldór

RIAA (Recording Industry Assicoation of America) fékk smá skell í réttarsal í BNA fyrir skemmstu. Dómari þar felldi þann dóm að ekki væri næg ástæða fyrir lögsókn að gera tónlist aðgengilega öðrum heldur þyrfti að sanna að lögin hefðu verið sótt af öðrum. Dómarinn sagði líka að “boð um dreifingu” gæti hins vegar flokkast sem nógu góð ástæða. Þannig að gera má ráð fyrir að lögsóknunum verði haldið áfram, bara með breyttu orðalagi.

Þó þetta sé ekki fullnaðarsigur þá er þetta skref í rétta átt fyrir okkur netverja.