Alltaf að blogga og svona….
17. May, 2008 eftir Halldór
Það hefur svo sem ekkert stórvægilegt gerst hérna undanfarið.
Árni og Fanney kíktu í heimsókn hérna yfir eina helgi (ég á ennþá eftir að launa þér þetta Árni) og við vorum voða, voða full. Þið getið lesið nánari útlistun á því sem við gerðum á síðunni hans árna.
Svo fékk ég yfirmanns stöðuna sem ég var að sækjast eftir og get kallað mig Restaurant Supervisor héðan af. Fínt að geta flassað því á CV.
Annars er ég í krónískri fýlu út í veðurfræðinga hérna. Brjáluð blíða vikuna áður en ég fór í frí. 25 gráður og sól og læti. Og að sjálfsögðu daginn sem ég byrja í fríi þá er skýjað og búið að vera það síðan.
Jæja, ég nenni ekki meiru í bili, over and out.