Eldri færslur fyrir June, 2008

Bloggedíblogg

23. June, 2008 eftir Halldór

Ég verð að segja að mér brá svolítið þegar ég kíkti á mlb.is í morgun og sá gengið á dönsku krónunni heima. 17,18 ISK kostar ein DKK. Það er bara það hæsta sem ég hef séð. Ekki að ég kvarti, fæ miklu meira út úr þeim peningum sem ég millifæri heim.

Annars er hann Lýður, betur þekktur sem -lottó, að kíkja í heimsókn til mín um miðjan júlí. Nánar til tekið 10. – 19. júlí. Eitthvað segir mér að lifrin fái að vinna fyrir kaupinu sínu þá daga. Ekki að við séum eitthvað þekktir fyrir að fá okkur neðan í því strákarnir sko, nei nei.

Annars væri gaman að sjá hversu margir lesa þetta röfl í mér í raun. Skelliði endilega inn kommenti hérna fyrir neðan svo ég sjái nú svona ca. hversu mörg (eða fá kannski frekar) þið eruð.

Pís.

Dótið mitt

21. June, 2008 eftir Halldór

Ég fór af einhverjum ástæðum að rifja upp hvað maður er búinn að kaupa sér af dóti hérna úti. Kom í ljós að það er helvítis hellingur.
Hefst nú lesturinn.

HTC Touch, keyptur í þessum mánuði.

Canon EOS 350D myndavél, með batterígripi, keypt í október.

ARGON 7240 hátalarar, keyptir í maí.

ARGON magnari, keyptur í maí.

JBL Creatures II hátalarar, keyptir í desember.

20″ iMac, keyptur í nóvember.

iPhone, keyptur í apríl.

Asus EEE PC, keypt í apríl.

Og svo það sem ég er að reyna að kaupa í augnablikinu:

Nokia 8800 Sirocco.

Spurning hvort þetta sé orðið ágætt í bili.

Smá niðritími …aftur

21. June, 2008 eftir Halldór

Jæja, þá komumst við til botns í hvað kom fyrir síðuna mína.
Þeir hjá 1984 höfðu sem sagt gleymt að uppfæra DNS færlsurnar á síðunni yfir á nýja serverinn. Gaman að því alltaf.
Annars er allt við það sama hérna í Danmörkinni. Allt of mikið að gera hjá mér í vinnunni eins og vanalega og sól og 20+ gráður.
Ég er svona að reyna að muna hvort það hafi gerst eitthvað markvert hérna síðan ég skrifaði síðast en mér dettur bara ekkert í hug. Þannig að ef eitthvað hefur gerst þá getur það ekki hafa verið mikilvægt.

Over and out í bili.