Já þið lásuð rétt. Ég ætla að heiðra íslendinga með nærveru minn eina helgi eða svo.
Ég fer héðan frá gömlu höfuðborginni fimmtudaginn 11. sept og lendi um kl 15:10.
Planið er svo (eins og þið flest sennilega vitið) að skella sér í sumarbústað með einhverjum rugluðum fyllibyttum og vera þar yfir helgi. Svo verður flogið aftur hingað út í þynnkunni á sunnudeginum.
Meira var það ekki í bili.
Þá er Copenhagen Fashion Week búin í annað skipti í ár.
Þetta er vika þar sem öll hótel á stór-Kaupmannahafnar svæðinu eru full og ekki séns að fá herbergi nema kannski í Malmö.
Þetta er líka vika þar sem er ruglað að gera hjá mér.
Það má eiginlega orða það þannig að ég hafi mætt í vinnuna kl. 14 á mánudaginn síðasta og farið heim um miðnætti í gær.
Kosturinn við þetta hins vegar er að ég er á svimandi launum meðan á þessu stendur. Getum ekki vælt yfir því er það?
Þannig að dagurin í dag verður tekinn í algera afslöppun og kannski þvo nokkrar þvottavélar sem maður náði ekki í síðustu viku.