Já, ég er ennþá á lífi
3. November, 2008 eftir Halldór
Bara svona ef einhver var farinn að efast um það, þá er ég ennþá alveg sprell lifandi.
Að vísu orðið fjári langt síðan ég tjáði mig hérna síðast. Það hefur svo sem ekki gerst mikið hjá mér á þessum tíma.
Ég er að drukkna í vinnu á hótelinu og svo er alltaf eitthvað að gera hjá JAM Digital.
Erum að leggja lokahönd á heimasíðu fyrir eitt hótel hérna í Kaupmannahöfn og erum svo að vinna á fullu í heimasíðu fyrir okkur sjálfa. Nóg að gera sem sagt.
Ég býst svo við því að halda jól hérna í Køben hjá pabba. Um áramót er hins vegar búið að leigja stað undir okkar stóra vinahóp, ætli við verðum ekki í kring um 30-40 sem komum saman þar.
Þið eruð annars bara hress, ehaggi ?