Eldri færslur fyrir May, 2009

Nýkominn frá Íslandi og brjálað að gera

19. May, 2009 eftir Halldór

Maður var ekki fyrr lentur í Kastrup og kominn heim en maður var byrjaður að þvo þvott og klára að koma sér fyrir. Ég er sem betur fer að verða búinn með þann pakka núna.
Ástæðan fyrir því er einföld. Ég hafði 2 daga til að gera þetta allt saman, því að á morgun byrjar 8 daga vinnutörn hjá mér og eftir það hef 1 frídag og svo 2 vinnudaga. 1. júní fer ég svo í viku til Pristina í Kosovo.
Eftir það er svo sem ekki mikið á dagskránni, vinna frekar mikið eins og maður gerir vanalega bara.
Ég kem svo aftur til Íslands 24. júlí og verð til 3. ágúst.
Það er reyndar planað að skreppa eitthvað til Svíþjóðar fyrir Íslandsferðina en veit ekki alveg hvenær það verður.

H

Sumarbústaðarferð afstaðin, myndir komnar á netið

19. May, 2009 eftir Halldór

Myndirnar af minni vél eru komnar upp og þið getið séð þær hér
Þið getið líka uploadað myndunum sem þið tókuð á þessa síðu.

Nýtt skjáskot, nokkuð ánægður með hvernig litli Mac mini-inn er orðinn

5. May, 2009 eftir Halldór

Best að skella Macbookinni inn líka fyrst ég er að þessu á annað borð

Þar sem ég er sjúkur maður þá breytti ég aðeins til á Mac MIni. Ég held ég láti leggja mig inn bráðum….

Flutningar í nánd

5. May, 2009 eftir Halldór

Við strákarnir erum komnir með nýja íbúð. Hún er hérna í næsta nágrenni, eða hinum megin við garðinn til að vera nákvæmari. Tveggja mínútna labb í mesta lagi. Erum einmitt að fara að ná í lyklana að henni á eftir.

Við komum bæði til með að spara slatta af peningum í leigu og svo fáum við talsvert stærri íbúð.

Ég skelli inn myndum hérna þegar ég er búinn að taka þær og ná í lyklana.

EDIT: ég gleymdi að sjálfsögðu myndavélinni heima þannig að ég tók engar myndir. Hefði svo sem ekki komið að sök þar sem það var farið að dimma og engin ljós í íbúðinni. En við erum komnir með lykla samt.