Eftir milljón aukavaktir er frídagur en að sjálfsögðu bara einn. Fer svo í vinnu á morgun og sunnudag.
Á morgun er ansi stór veisla í vinnunni þannig að það verður langur dagur, vona bara að það verði rólegra á sunnudaginn.
Næsta vika býður svo upp á fundi, vínsmakkair og meri vinnu. Hlakka til þess eins og alltaf.
Ég átti víst alltaf eftir að henda myndum frá Þjóðhátíð 2009 hérna inn.
Þær eru hér
Jæja, það hlaut að koma að því.
Dengsi lagðist í flensu í gær. Vonum að það sé ekki svínka.
Annars er allt við það sama svo sem. Bilað að gera í vinnunni og ég eyði að sjálfsögðu meiri tíma þar en annars staðar.
Annars er íslandsferð á döfinni í nóvember en það verða sennilega tekin 2-3 stökk til stokkhólms áður en að því kemur.
Svo þarf ég að fara að finna mér einhverja nýja staði til að ferðast til. Einhverjar tillögur ?