Eldri færslur fyrir October, 2009

Enn einn mánður að verða búinn

26. October, 2009 eftir Halldór

Þá er enn einn mánuður að verða búinn og ég er ekki að ná því að ég sé búinn að vera hérna í næstum tvö og hálft ár.
Ég flutti líka á hárréttum tíma. Íslenska krónan stóð nokkuð vel gegn dönsku krónunni og ég fékk tiltölulega mikið fyrir peningana. Það voru engir á móti íslendingum, ekki að menn séu það núna, og allir höfðu það nokkuð gott.

Í dag er þetta aðeins öðruvísi.
Íslenska krónan stendur ekki vel gegn neinum gjaldmiðli, er verðlaus pappír ef svo má segja.
Það var sterkur orðrómur um að danir væru á móti íslendingum og vildu helst ekki ráða þá í vinnu. Það er helber lygi, danir hafa aldrei sýnt mér annað en skilning og jafnvel vorkunn eftir að allt fór til fjandans á skerinu.

Það góða við þetta hrun á íslandi er að ég heimsæki landið mun oftar en ég hefði sennilega gert.
Flugin eru að vísu orðin frekar dýr en maður lifir eins og kóngur á dönskum krónum á Íslandi.

Þegar ég kem næst, þann 5. nóvember, er það fjórða skiptið á þessu ári sem ég kem í heimsókn.
Amma gamla er að verða níræð og mér fannst líka kominn tími til að heilsa upp á kunningjana. Ég veit þið saknið mín :)

Ég verð hins vegar að lýsa yfir furðun og pirringi á verðlagi á flugförum til ísland í kring um jól.
Ég var að láta mér detta það í hug að kíkja á fjölskylduna á Íslandi þessi jólin en flugfélögunum tókst aldeilis að stöðva það mjög snöggt.

Ef að ég vil fara frá Kaupmannahöfn þ. 22. des (þegar ég kemst í jólafrí) og fara aftur til Danmerkur að morgni 2. janúar kostar það mig um 75.000 íslenskar krónur.
Fargjaldið sem ég keypti fyrir þessa heimsókn mína í nóvember kostaði um 50 þúsund krónur.
Hvað er það sem réttlætir þessa rosalegu hækkun á fargjaldinu ?
Það eru um 15.000 íslendingar búsettir í Danmörku og margir þeirra huga á ferð til Íslands í kring um jól.
Ef að flugfélögin myndu t.d. bæta við 2-3 ferðum og sleppa því að hækka fargjöldin í kring um jól myndu þau fá fleiri farþega og raka inn fleiri penginum…

Ég held stundum að fólk sem fær að stjórna fyrirtækjum hafi bara ekki farið í gegn um menntaskóla.
En því miður virkar þetta hjá þeim þar sem fólk vill fara heim um jólin að hitta fjölskylduna. Ég er hins vegar svo “heppinn” að eiga fjölskyldu í 3 löndum að ég valdi að eyða jólunum með bróður mínum í Stokkhólmi í þetta skiptið.

Endilega kommentið hér að neðan ef þið hafið eitthvað um þetta að segja..þ.

Góðar stundir

Styttist í you know what…. :)

21. October, 2009 eftir Halldór

Jæja, þá styttist í einn eitt ferðalagið.

Í þetta skiptið er ferðinni heitið til Íslands að heimsækja vini og vandræðamenn yfir eina helgi, 5-8 nóvember.