Eldri færslur fyrir December, 2009

Jól í Stokkhólmi

30. December, 2009 eftir Halldór

Jólin í Stokkhólmi hafa heppnast stórkostlega, bara eins og búist var við.
Það er að sjálfsögðu búið að borða allt of mikið en að sjálfsögðu búið að drekka bara hóflega (*hóst*).
Síðustu 2 dögum er búið að verja á útsölum og gera þvílíku kjarakaupin og eyða alveg fullt af peningum, eins og okkur einum er lagið.
Svo verður farið á morgun að ná í kalkúninn fyrir gamlárskvöld og versla það síðasta sem þarf.

H.

Gleðileg jól öll saman

22. December, 2009 eftir Halldór

Þá er komið að þessum blessuðu jólum aftur.
Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og þakka árið sem er að líða.

Ég mun eyða jólum og áramótum með fjölskyldunni í Stokkhólmi þetta árið og kem fyrst heim þann 3. janúar á næsta ári.
Ég á ekki von á að ég nenni mikið að vera í símasambandi yfir þennan tíma þannig að ef þið þurfið að ná í mig þá er einfaldast að gera það í gegn um e-mail eða hafðu samband hlekkinn hér að ofan.

Halldór.

Jeremías hvað þetta er fallegt

15. December, 2009 eftir Halldór