Eldri færslur fyrir January, 2010

Ísland 27 – Danmörk 22

23. January, 2010 eftir Halldór

Svona á að gera þetta strákar.
ÁFRAM ÍSLAND!!

Ellin nálgast…

20. January, 2010 eftir Halldór

Maður kemst víst ekki undan því að eldast, þó svo maður reyni eins og maður geti.
Eins og þið vitið nú flest þá er ég að verða þrítugur þann 14. mars og af því tilefni þá ætla ég að heiðra ykkur með nærveru minni.
Ég s.s. verð á Íslandi frá 11-15. mars næstkomandi og gisti eins og vanalega á Radisson 1919 hotel í miðbæ Reykjavíkur (stutt að fara af djamminu sko).

Annars er svona flest við það sama. Óvenjulega mikið að gera í vinnunni miðað við árstíma og litla fyrirtækið okkar strákanna blómstar.
Eins og svo oft áður þá skammast maður sín soldið fyriri að vera latur við að skrifa hérna inn, skal reyna að bæta úr því (enn og aftur).