Ef að þið elskið brjálæðislega góða hamborgara eins og ég þá er ég með síðu sem ykkur langar að skoða.
Ég rakst á þessa síðu fyrir þó nokkru siðan en gleymdi henni síðan á nýju heimsmeti.
Þetta er síðan fyrir þá sem virkilega elska góðan burger…
Núna finnst mér alveg komið nóg af þessum andsk….s vetri hérna í Danmörku.
Það er búið að vera frost hérna síðan um miðjan desember í fyrra og nærri því snjór á götum á hverjum degi.
Það er ekki hægt að reiða sig á tímatöflur almenningssamgangna, þar sem þær eru allar úr skorðum vegna snjókomu og ísingar. Það væri réttast að halda þessa fjárans vetrarólympíuleika hérna í Danmörku heldur en Kanada (svona ef maður sér aðeins framhjá þessu litla smáatriði með að það eru engin fjöll að renna sér niður), það þarf þó alla vegana ekki að framleiða snjóinn.
Því legg ég til að hinir íslensku veðurguðir tali nú aðeins við þessa dönsku og fái þetta á hreint.
Vetur og snjókoma og álíka leiðindi eiga heima á Íslandi, ekki í Danmörku.
Ég krefst þess að tafarlaust verði komið á fyrra jafnvægi í veðri og að við getum hringt og gortað okkur af hversu gott veðrið hérna í Kaupmannahöfn sé, ekki að það sé hringt í okkur og gortað frá Íslandi.
Eins krefst ég þess að 11-15 mars næstkomandi verði bongóblíða í Reykjavík, annars verð ég alveg brjál…
Þá er tískuvikan yfirstaðin í eitt skiptið enn.
Þessar hugmyndir sem ég var með að liðið yrði nú aðeins stilltara en maður er vanur klikkuðu alveg.
Brjálað fyllerí upp um alla veggi og allir að gera mig brjálaðan. Bað einn t.d. um að halda kjafti eftir að hann hafði flautað á mig 5 sinnum. (Sagði honum reyndar ekki að halda kjafti fyrr en ég hafði hellt mér aðeins meira yfir hann)
En þetta gekk nú allt saman eins og vanalega og þó þetta sé alveg hundleiðinlegt þá er þetta nú ágætur peningur í kassann á þessum síðustu og verstu tímum.
Nú nálgast “uppáhaldið” mitt, tískuvikan í Kaupmannahöfn.
Það þýðir að það verður brjálað að gera hjá mér í vinnunni og fullt af blindfullu tískuliði sem heldur að það eigi heiminn.
Í öll þau skipti sem þessi tískuvika hefur verið haldin, eftir að ég byrjaði á hótelinu, hef ég þurft að henda út fólki sem hefur verið komið á bakvið barinn eftir lokun og reynt að afgreiða sig sjálft. Til dæmis hef ég þurft að henda sama gæjanum út fjórum sinnum. Ef ég þarf að gera það í þetta skiptið líka fær hann að sofa úti.
Reyndar er ekki búist við eins mörgum gestum og undanfarin skipti, þar sem að tískuheimurinn er víst líka í kreppu eins og aðrir. Vonum að það þýði líka að þau verði ekki eins heilalaus af drykkju eins og svo oft áður.
Svo er líka nóg að gera í JAM Digital
Erum að klára að endurhanna síðuna fyrir Avenue Hotel og Cafe Blasen , ásamt því að ég er sjálfur að koma 2 síðum í loftið fyrir utan þessa. Læt ykkur vita hvernig það fer allt saman.
H