Eldri færslur fyrir March, 2010

Ooooog svo önnur íslandsferð

31. March, 2010 eftir Halldór

Jæja, þá er komið að meiri ferðalögum.
Enn og aftur er ferðinni heitið til Íslands að hitta elskuna mína, ég er sem betur fer að fá hana hingað út í maí :)

Þetta verður meira hugsað sem afslöppunarferð, síðasta ferð var það alls ekki. Eins og flestir kannski muna þá var djammað út í eitt.
Við ætlum að eyða helginni úti á landi og koma svo í bæinn á sunnudaginn. Svo er víst planaður dinner með Gísla bróður það kvöld.
Svo eigum við mánudaginn saman og svo fer ég aftur hingað til DK á þriðjudeginum :(

En svo við víkjum aftur að maí.
Árni og Katrín eru að koma 13. maí og verða fram að 18. Það ættu að verða nærri því jafn erfiðir dagar og ég upplifði með Lýðnum hérna um árið.
Ég var reyndar svo séður að taka mér frí þá daga sem þau eru hérna þannig að þetta ætti ekki að gera mig óvinnuhæfan eins og Lýðnum tókst næstum.
Ég hlakka svo bara til að sjá ykkur, þessi fáu sem ég sé.
Svo vonum við bara að það komi önnur færsla áður en ég fer frá Íslandi, DADDARA!!!