Eldri færslur fyrir April, 2010

Katrín og Árni að koma og svo meira Ísland í júní.

9. April, 2010 eftir Halldór

Eftir þessa líku fínu Íslandsferð er kominn tími á að einhver komi í heimsókn til mín.
Katrín og Árni ætla að kíkja hérna í 5 daga í maí að kíkja á sumarið og hafa það gaman.
Áður en þau koma ætla ég hins vegar að taka skrepp til Stokkhólms til Gísla bróður í einhverja vitleysu eins og okkur einum er lagið.
Svo ætla ég að skreppa til Íslands í fyrri hluta sumarfrís, á eftir að ákveða nákvæmlega hvenær eða hvað ég verð lengi samt.

Kvöldið í kvöld býður hins vegar upp á bjór og meiri bjór.