Stokkhólmsferð að verða búin.
9. May, 2010 eftir Halldór
Þá er þessi ferð að verða búin.
Þetta er nú búið að vera ósköp rólegt hjá okkur þannig. Fórum duglega út að borða á fimmtudaginn og tókum aðeins á því eftir það. Annars eru menn búnir að vera voða þægir og snemma í rúmið og svona. Veit ekki alveg hvað kom yfir okkur.
Þannig að það er flug heim í kvöld, ætla að vona að farangurinn minn skili sér í þetta skiptið, og svo vinna í 3 daga og svo aftur í 5 daga frí. Ég kvarta ekki sko.
EDIT: Ég gleymdi víst að setja inn myndir úr þessari ferð. Þær koma HÉR