Eldri færslur fyrir June, 2010

Íslandsferð júní 2010

16. June, 2010 eftir Halldór

Þá er þessi ferð víst að verða búin. Bunir að vera fjandi skemmtilegir dagar.

Byrjaði reyndar frekar óspennandi þannig.
Lenti í Keflavík um 9 á miðvikudagsmorgni og tók síðan rútuna í bæinn. Var kominn til Katrínar um 11.
Við ákváðum svo að leggja okkur “aðeins” … skriðum fram úr einhverjum mörgum tímum síðar!

Fimmtudagur byrjaði ansi rólega líka (eftir að Emilía Ósk var komin á leikskólann :) )
Lýðurinn hafði svo samband um kvöldið og var ákveðið að hitta á kvikindið í 1 bjór eða svo… Þeir urðu aðeins fleiri!

Svo kom föstudagur. Nú skal sko farið í sumarbústað í Ölfusborgum!

Það var náttúrulega byrjað á því að hafa sig til og pakka niður í tösku (ég þurfti reyndar ekki annað en að loka minni).
Ása kom svo og sótti okkur og við brunuðum í bústað (með smá viðkomu í Krónunni, bensínstöð og Nonnabita). Gott ef við komum ekki við á selfossi, versluðum aðeins meira og fórum á KFC líka.

Og það fyrsta sem við gerðum, eftir að hafa dröslað farangri og mat inn í bústað, var að opna tölvurnar og tengjast þráðlausa netinu hérna á svæðinu (við erum ekkert miklir nördar er það?)
Þegar það var búið var sko kominn tími á að opna bjór og græja pottinn. Þetta seinna var aðeins meira vandamál.
Það var hækkað og lækkað og gert og græjað, ekkert virkaði.
Þangað til að mér datt í hug að tæma hann bara alveg og láta renna í hann aftur, þá loksins hitnaði kvikindið.
Þegar það var svo loksins búið að finna út úr því og hann orðinn fullur (potturinn sko, ekki ég) var ákveðið að skella sér ofaní.
Þar var svo legið í marineringu að innan sem utan restina af kvöldinu.

Laugardagur: Farið á Selfoss og verslað meira (voðalega er hægt að versla) og brunað í bústaðinn aftur. Opnaður bjór og pottur græjaður.
Vinkona Ásu og bróðir hennar kíktu svo í heimsókn um kvöldið og ákvað Ása af því tilefni að vera fulli gaurinn það kvöld. Ég fann t.d. glas og fleira skemmtilegt í pottinum daginn eftir.

Sunnudagur og allir hálf þunnir. Nema Ása, hún var bara þunn.
Þegar allir voru almennilega vaknaðir var brunað í Hveragerði (alveg alla leið sko) og fengið sér að éta. Fórum svo í heimsókn til mömmu hennar Katrínar.
Grilluðum svo í bústaðnum og tókum smá marineringu í pottinum, bara að utan í þetta skiptið.

Á mánudeginum var farið að versla eina ferðina enn.
Fórum svo bara í bústaðinn aftur og lágum í leti það sem eftir var dags.

Þriðjudagur var á voðalega svipðum nótum.
Ása fór heim með afkvæmið seinni partinn og lágum við Katrín bara í leti yfir sjónvarpsþáttum og bíómyndum.

Næstu dagar fóru að mestu í það sama þangað til við fórum aftur í bæinn á föstudeginum.

Þegar þetta er skrifað sit ég svo á Keflavíkurflugvelli að fá mér bjór og bíða eftir flugvélinni til Köben.

Danmerkurferð Árna og Katrínar

16. June, 2010 eftir Halldór

Jæja, þó það sé nærri liðinn mánuður frá því að Árni og Katrín voru hjá mér í Danmörku þá er best að segja aðeins frá ferðinn hjá þeim.
Ég skrifa þetta eftir minni, þannig að ef eitthvað er vitlaust hjá mér, endilega leiðréttið mig.

Þetta var nú reyndar frekar tíðindalítið.
Á fimmtudeginum (þegar þau komu) var svo sem ekkert gert. Drukkinn smá bjór heima bara.
Á föstudaginn var hins vegar byrjað á að fara í Fields, Katrín í H&M að finna föt á Emilíu Ósk og Árni í skóleiðangur. Svo var farið í hádegismat.
Seinna var svo haldið í bæinn að skoða aðeins og endað á djamminu. Byrjað á Blasen eins og lög gera ráð fyrir og svo haldið á hina ýmsu staði.
Árni pullaði svo Lýð á þetta og skilaði sér ekki heim það kvöldið. Heyrði í honum upp úr hádegi daginn eftir, hann hafði þá bara fengið sér hótelherbergi.

Kíktum aftur í Fields á laugardeginum í hádegismat og skoðuðum aðeins meira. Svo var haldið heim og Árni smíðaði pizzu ofan í liðið. Kíktum svo í bæinn á smá djamm.

Ég man reyndar ekki eftir því að neitt markverðara hafi gerst eða að myndir hafi verið teknar. Þið verðið þá bara að bæta því við hérna í kommentin :D