Eldri færslur fyrir July, 2010

Það var þetta með að blogga já.

27. July, 2010 eftir Halldór

Það hefur nú reyndar ekki gerst neitt gríðarlega mikið síðan síðast.
Þegar ég kom heim úr fríinu þá lagðist ég í 11 daga vinnutörn, fékk síðan 2 daga í frí og vann svo í 7 daga.

Ég er svo í seinni hluta sumarfrís núna og er búinn að vera eina viku af tveimur. Ykkur að segja er ég ekki búinn að gera neitt þessa vikuna. Það er búið að slappa af, sötra nokkra bjóra og hafa það gott!
Svo hætti ég við að koma í helgarfrí til íslands í ágúst, Katrín ætlar að koma til mín í nokkra daga í staðinn bara :)